Guðir hins nýja tíma

Við komum til að segja þér satt
Við komum að færa þér gleði
Við framleiðum hávaða
Við framleiðum líf og fjör

Ó guðir hins nýja tíma
Við erum
Guðir hins nýja tíma

Við framleiðum styrjaldir og morð
Við framleiðum hrunin hús
Við bjóðum þér að gerast hetja
Drepa hálfmenni gul og svört

Og ef þú kemst ekki á vígvöllinn
Við bjóðum þér góða skemmtun
Þú horfir bara á sjónvarpið
Og lætur sem þú sért á staðnum

Ó guðir hins nýja tíma
Við erum
Guðir hins nýja tíma


Og ef þú vilt ekki skemmta þér
Ef þú vilt ekki gerast hetja
Þú skalt ekki halda að þú sleppir
Við komum og náum í þig

Copyright 2008 Árni Daníel Júlíusson, Design by Rex Jones / Axel Kristinsson / Ari Júlíus Árnason