Íslandi allt (Ísland über alles)

Fegurðin í kring um mig
Er heillandi og ægileg
Framtíðin í öskutunnum
Malbikuð, malbikuð

Íslandi allt, Ísland über alles

Vandamálaverksmiðjur
Segulbandaþjóðleikhús
Sjálfstæðið var sett á safn
Dönsum, dönsum

Íslandi allt, Ísland über alles

Í frystihúsum fögur hljóð
Dauðasöngur þorskanna
Vandamálafrystihús
Blokkirnar, blokkirnar

Íslandi allt, Ísland über alles

Sumir fara fjandans til
Eða þá til Svíþjóðar
Nútíminn er heróín
Sjónvarp, sjónvarp

Copyright 2008 Árni Daníel Júlíusson, Design by Rex Jones / Axel Kristinsson / Ari Júlíus Árnason